
|
MARAÞON OG RÓMANTÍK Í ÞÓRSMÖRKINNI
HÚSADALUR, ÞÓRSMÖRK
Í Húsadal er boðið uppá fjölbreytta gistingu. Þeir sem vilja upplifa sannkallaða fjallastemningu geta gist í skálum eða á tjaldsvæðinu en þeir sem vilja vera meira "prívat" geta gist í smáhýsum eða tveggja manna herbergjum. Margbreytileg afþreying og þjónusta er í boði á svæðinu. Unnt er að kaupa máltíðir, fara í lengri og styttri gönguferðir, slaka á í gufunni og fjölmargt annað. Eitt er víst; allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Dalsel er veitinga- og móttökuskálinn í Húsadal. Þar fer fram innritun fyrir nýja gesti, sala á veitingum, s.s. súpu í hádegi og vöfflum í kaffinu, sem og hlaðborð á morgnana og kvöldin. Einnig er hægt að versla þar ýmislegt smálegt, eins og göngukort, húfur og vettlinga, drykki, sælgæti og ís. Farmiðar í rútur Kynnisferða eru einnig seldir í Dalseli. Þórsmörk er upphafs- og endastaður margra af þekktustu gönguleiðum landsins, t.d. um Laugaveginn og yfir Fimmvörðuháls. Auk lengri gönguleiða eru fjölmargar fallegar styttri gönguleiðir. Sjá nánar göngukort hér. Fyrir áhugasama eru GPS hnitin fyrir Húsadal 63 41 350 N og 19 33 100 W. Kynnisferðir halda úti áætlun milli Reykjavíkur (BSÍ) og Þórsmerkur tvisvar á dag frá 15.júní til 30.ágúst (fram og til baka). Frá 1.sept til 15.sept eru ferðir einu sinni á dag (fram og til baka). Sjá nánari upplýsingar á vef Kynnisferða www.re.is. Aðstaðan í Húsadal er opin frá 1.maí til 30.september en utan þess tíma er opið fyrir hópa. Við tökum að sjálfsögðu við fyrirspurnum og bókunum - Ragnheiður, Binni og co. bjóða gesti okkar velkomna í heimilislega andrúmsloftið í Húsadalnum góða :) Hafið endilega samband á skrifstofuna í síma 552-8300 eða í thorsmork@thorsmork.is til að fá frekari upplýsingar. Einnig gefa staðarhaldarar upplýsingar um færð yfir ár o.þ.h. í síma 894-1506 Við hlökkum til að sjá ykkur :) Senda grein Húsadalur - Þórsmörk
|
![]() |